Ásgeir Trausti

Testo Leyndarmál Ásgeir Trausti

1.127

Vota questo testo:
Voto degli utenti: 0.0/10 - Voti totali: 0

Leyndarmál


Glitrar næturdögg og geng ég þar með henni
grátur hvítvoðungs nú berst frá rauðu húsi.
Læðast refahjón og lafir bráð úr kjafti
lerkiskógurinn hann fær nú margt að vita.

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
koma hersveitir til að ná í skammtinn
svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
sjúkleg árátta fær þá til að virka.

Tifar lífsins blóm ég tóri ef ég nenni
tárast silfurberg svo langt frá steinhúsi
andar sunnanblær og eflist af lífskrafti
enginn maður veit og enginn fær að vita.

Þegar kóngurinn er með kross í hendi
koma hersveitir til að ná í skammtinn
svalir nátthrafnar sjá að nú er færi
sjúkleg árátta fær þá til að virka.

[x2]

Grazie perchè correggi questo testo
 

Il testo LEYNDARMÁL di ÁSGEIR TRAUSTI è presente anche nell'album Dýrð í dauðaþögn (2013)

Lascia un commento alla canzone

Artisti correlati